Ráðgjöf og þjónusta
Kapex veitir fyrirtækjum, einstaklingum og opinberum aðilum yfirgripsmikla ráðgjafarþjónustu á sviði viðskipta og fjármála. Ráðgjafar Kapex vinna með viðskiptavinum okkar að hverju verkefni fyrir sig og leggja áherslu á að þjónustan skili tilætluðum árangri ásamt því að hún skilji eftir sig þekkingu og færni á viðkomandi sviði, viðskiptavinum okkar til framdráttar.
Það er okkar metnaður að veita vandaða og faglega ráðgjöf og leggjum við ríka áherslu á að öll samskipti við umbjóðendur okkar grundvallist af heilindum og trúnaði. Á það jafnt við um viðskiptavini okkar og þá sem leggja undir okkur hugmyndir að verkefnum sem af einhverjum ástæðum við tökum svo ekki að okkur.
Kapex á í samstarfi við lögfræðistofur, endurskoðendur, verkfræðistofur og upplýsingatæknifyrirtæki og er verkefnum úthýst, í samráði við viðskiptavin, eftir þörfum.
Ráðgjafar Kapex notast við viðurkenndar aðferðir við úrlausn þeirra verkefna sem þeir taka sér fyrir hendur.
Á þeim sviðum sem Kapex bíður fram þjónustu sína má nefna:
|
· Fjármál fyrirtækja (e. Corporate Finance) · Verðmat (e. Asset Valuation) |
· Endurskipulagning (e. Restructuring) · Viðskiptaáætlanir (e. Business Plans) |
Ítarlegar upplýsingar um þá þjónustu sem Kapex veitir er hægt að finna hér á heimasíðu félagsins undir þeim hlekkjum sem má sjá hér til hliðar.
