Stofnun og rekstur fyrirtækja

Ráðgjafar Kapex taka að sér að aðstoða frumkvöðla við stofnun fyrirtækja, hvort sem það er undirbúningur stofngagna, gerð viðskiptaáætlana, ráðgjöf við fjármögnun eða önnur almenn viðskipta- og rekstrarráðgjöf.

Að stofna fyrirtæki er jafnan spennandi tími en á sama tíma mun sá sem stendur á slíkum tímamótum þurfa að takast á við mörg krefjandi verkefni sem fylgja því að ýta nýju fyrirtæki úr hlaði. Oftar en ekki standa frumkvöðlar frammi fyrir hinum ýmsu hindrunum sem geta m.a. verið í formi takmarkaðs aðgangs að fjármagni, gerð rekstrar- og viðskiptaáætlana eða útfærslu bókhalds- og rekstrarferla. 

Ígrundaður undirbúningur, raunhæfar rekstraráætlanir og faglega framsett viðskiptaáætlun getur gefið frumkvöðlum gott forskot sem eykur líkurnar á því að hugmyndir þeirra fái hljómgrunn hjá bönkum, fjárfestum eða öðrum hagsmunaaðilum.

Kapex veitir frumkvöðlum ítarlega ráðgjöf í gegnum allt ferlið, allt frá hugmynd að arðbæru fyrirtæki, með það að leiðarljósi að viðkomandi öðlist aukna þekkingu og færni sem nýtist til frambúðar. 







Tikktakk Software