Rekstur og fjármál

Fjármála- og rekstrarráðgjöf Kapex tekur tillit til allra helstu þátta er snerta fjármál fyrirtækja (e. Corporate finance). Fjármál fyrirtækja er víðfeðmt viðfangsefni sem, í stuttu máli, fjallar um það hvernig skuli hámarka heildarvirði fyrirtækis - að teknu tilliti til áhættu eigna/sjóðstreymi þess. Gróflega er hægt að skipta viðfangsefninu niður í tvo flokka. Annars vegar langtímaákvarðanir sem fjalla um þætti er snúa að fjármögnun og fjárfestingum og hins vegar skammtímaákvarðanir sem fjalla til að mynda um stjórnun á rekstrartengdri fjárbindingu og skuldum, s.s. stýringu á birgðahaldi, greiðslufresti og lausafé.

Flestar ákvarðanir sem teknar eru innan fyrirtækja koma til með að hafa áhrif á virði þeirra. Ráðgjafar Kapex veita leiðsögn um hvernig skuli standa að slíkum ákvörðunum og hvernig þær ákvarðanir koma til með að hafa áhrif á virði viðkomandi fyrirtækis. Við leggjum áherslu á að viðskiptavinir okkar fái skýra og greinargóða úttekt á störfum okkar og að sú vinna komi til með að nýtast umbjóðendum okkar við ákvörðunartökur í öðrum verkefnum síðar meir.

Á meðal þeirra verkefna sem við tökum að okkur eru: Verðmat, ráðgjöf við kaup og sölu fyrirtækja, viðskiptaáætlanir, áætlanagerð, arðsemisútreikningar, endurskipulagning fyrirtækja, úttektir á stöðu fyrirtækja, árangursmat og virðisstjórnun, ráðgjöf fyrir frumkvöðla og óháð mat á fyrirliggjandi samningum, útreikningum eða öðrum gögnum.







Tikktakk Software