Áætlanagerð og fjármálalíkön

 

Áætlanagerð er mikilvægt stjórntæki við rekstur fyrirtækja, stefnumótun þeirra eða endurskipulagningu. Mikilvægt er að áætlunargerð taki tillit til þess hvernig ákvarðanir hafa áhrif á virði viðkomandi fyrirtækja og sýni einnig hvort að fjárbinding í viðkomandi rekstri sé að skila ásættanlegri afkomu. Sjá nánar Hagrænn hagnaður.

Ráðgjafar Kapex taka að sér ráðgjöf við áætlunargerð. Geta þeir annars vegar veitt leiðsögn við gerð áætlana og hinsvegar fullunnið áætlanir í samráði við viðskiptavin. Ennfremur geta ráðgjafar okkar unnið fjármálalíkön sem nýtast við áætlanagerð eða daglegan rekstur. Slík líkön geta verið allt frá einföldum skjölum til að reikna út tollaálagningu og framlegð vegna innflutnings eða til stærri og flóknari skjala sem nýtast við ákvörðunartöku, sjóðstýringu og stefnumótun - þar á meðal deildaskiptar áætlanir fyrir fyrirtæki sem bjóða uppá marga vöruflokka, þjónustuleiðir eða framleiðslu.

 







Tikktakk Software