Arðsemisútreikningar og fýsileikakannanir
Áður en farið er af stað í framkvæmdir, breytingar eða hverskyns fjárútlát er mikilvægt að átta sig á því hversu miklu það muni skila, eða spara, með tilliti áhættu og einnig í samanburði við aðra sambærilega valkosti.
Einfaldur arðsemisútreikningur er heppilegur undanfari viðskiptaáætlunar þar sem hægt er að gera grófa rannsókn á hagrænum fýsileika viðkomandi verkefnis án þess að þurfa ráðast í umfangsmikla greiningarvinnu. Ennfremur geta einstaklingar eða fyrirtæki kosið að gera umfangsminni arðsemisúttektir á verkefnum sem ekki þarf sérstaklega að sækja utankomandi fjármagn vegna.
Fyrirtæki standa oft frammi fyrir tveimur eða fleiri útilokandi fjárfestingarkostum. Getur það verið vegna takmarkaðs fjármagns eða vegna þess að fjárfesta þarf í ákveðnum búnaði þar sem margir kostir standa til boða. Til dæmis getur valið staðið á milli nokkurra framleiðsluvéla þar sem hver um sig hefur mismunandi eiginleika, s.s. ólíkan líftíma, mismunandi rekstrarkostnað, ólíka framleiðslugetu og/eða mismunandi startkostnað.
Ennfremur, þá standa oft ólíkir fjármögnunarkostir til boða og má þar helst nefna fjármögnunarleigu, rekstrarleigu, kaupleigu, hefðbundin lán og eigið fé. Getur það breytt miklu fyrir viðkomandi fyrirtæki hvernig fjármögnun er valin þar sem eiginleikar þessara leiða eru mismunandi, bæði með tilliti til bókhalds- og skattamála, og einnig með tilliti til afborgana og fjármagnskostnaðar.
Kapex sér um gerð arðsemisútreikninga fyrir fyrirtæki og fjárfesta og skilar því af sér í skýrsluformi eða stuttri greinargerð, allt eftir eðli og umfangi verkefnisins.
