Verðmat

 

Verðmöt á fyrirtækjum, eða öðrum eignum, eru gerð í margvíslegum tilgangi. Oftast eru þó verðmöt tengd við kaup eða sölu fyrirtækja eða hlutafjár. Hinsvegar eru verðmöt þýðingarmikil við aðrar kringumstæður. Skynsamlegt getur verið að framkvæma verðmat þegar fyrirtæki leitar eftir fjármögnun hjá banka eða öðrum fjármálastofnunum svo að lánadrottinn átti sig á raunverulegri skuldagetu félagsins. Ennfremur er verðmat mikilvægt tæki við endurskipulagningu fyrirtækja eða þegar farið er af stað með nýja þjónustu til þess að sjá í hversu miklum mæli slíkt kemur til með að hafa áhrif á reksturinn og virði hans.

Ráðgjafar Kapex nota að jafnaði sjóðstreymisgreiningu við verðmat fyrirtækja. Þegar sjóðstreymisgreining er framkvæmd þarf að gera ítarlega úttekt á eignum, skuldum og rekstri viðkomandi félags. Ásamt því að greina þurfi núverandi stöðu þá þarf einnig að framkvæma framtíðaráætlun á efnahags- og rekstrarreikningi félagsins svo hægt sé að spá fyrir um framtíðarsjóðstreymi þess. Þannig nýtist verðmat ekki síður við stefnumótun og áætlunargerð og getur það því verið mikilvægt tæki fyrir stjórnendur til þess að ná fram markmiðum sínum.

Þegar sjóðstreymisgreining er gerð til grundavallar kaupum eða sölu fyrirtækja er að öllu jöfnu notuð önnur verðmatsaðferð til staðfestingar, s.s. samanburðargreining, þegar gögn fyrir slíka útreikninga liggja fyrir hendi.

Nánari lýsing á því hvernig ráðgjafar Kapex framkvæma verðmat er að finna í einblöðungnum hér til hliðar. Til þess að opna skjalið þarf að hafa Adobe Reader.

 







Tikktakk Software